Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þetta er eitt mesta bull sem ég hef lesið

Það er enginn að fara að seigja mér að Bandaríkin og Rússar séu að afvopnast meðan Kínverjar eru með kjarnorkuvopn ennþá.

Þetta er bara það fáránlegasta sem ég hef séð og ekki gleyma að Obama er eins og karakter úr 1984 hann segist vera á móti pyntingum en samþykkir að nota þær áfram samt.  Það átti að loka Guantanamo Bay, seinast þegar ég frétti af því máli átti að skoða það 2011 og ef það verður gert verða fangarnir fluttir í leiknifangelsi annarstaðar hefur komið fram í fjölmiðlum í BNA. Maðurinn fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir að halda áfram að pynta fólk og stækka stríðin yfir í lofthernað með fjarstýrðum flugvélum á Pakistan og fyrir málaliða hernað í Jemen og einnig Pakistan enn og aftur.

Þegar hann tók við verðlaununum þá sagði hann að til þess að það geti verið friður þá þurfum við að heygja stríð, sem sagt Stríð er Friður beint úr 1984 eftir George Orwell.

Það er ekkert að marka þennan mann hann er alveg sami lygari og George W. Bush 

P.S. Ég vil bæta því við að auðvitað er ég á móti kjarnorkuvopnum eins og öðrum gjöreyðingar vopnum og stríðsrekstri yfir höfuð ég er aðeins að benda á að fullyrðingar Obama eru bull.


mbl.is Afvopnun langt komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostir LSD

Rannsóknir sem gerðar voru á lsd og ölkum sýndu að allt upp í 70% hættu að drekka eftir LSD meðferð hjá geðlæknum áður en lsd var bannað og lsd og Psilocybin ofskynjunarsveppir voru notaðir við áfallaröskum af geðlæknum áður en þetta var allt bannað.

LSD helps alcoholics put down the botttle

EF þið viljið prófa lsd eða sveppi eða önnur ofskynjunarlyf gerið það í öruggu umhverfi og í réttum skömmtum og með einhverjum sem hefur gert það áður. Lesa vel og vandlega um það sem þið ætlið að prófa áður en þið prófið það.

Það er ekki skrítið að fók hafi sturlast það hefur að öllum líkindum fengið risa stóra skammta miðað við lýsingarnar og ekki vitað hvað var að gerast svo að þetta eru ekki skrítnar niðurstöða.

Allt hefur kosti og galla og lsd notað rétt hefur mikið gott fram að færa og misnotað hörmulegar afleiðingar.


mbl.is Gerði CIA tilraun með LSD á heilu þorpi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama stjórnin notar enn Pyntingar


Obama stjórnin er ekki búin að banna  neitt af yfirheyrsluaðferðum Bush stjórnarinnar í staðinn er búið að samþykkja að halda þeim áfram.

Núna nýlega samþykkti Obama svolítið sem kallast Indefinite detendion sem þíðir bara að það má handtaka fólk og halda því í fangelsi að eilífu fyrir það að vera grunaður hryðjuverkamaður og núna er skilgreiningin á hryðjuverkamann orðin svo breið að fólk í bláum gallabuxum , fólk með gps í bílnum sínum og fólk sem styður eitthvað að svokölluðum þriðju flokkum í BNA og stuðningsmen Ron Paul republicana þingmanns eru hugsanlega hryðjuverkamenn.

Heimildir

Og Mbl hvernig væri að fara rétt með heimildir Obama er jafn slæmur og Bush


mbl.is Stoltur af hörðum yfirheyrslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda eru þær haugalygi, hriðjuvekin voru framinn af innanbuðarmönnum

Ég vil bara benda á að núna eru ákkúrat 1104 arkitektar og verkfræðingar sem eru sammála  Mahamud Ahmadinejad 

www.ae911truth.org

Þeir gerðu mjög góða mynd um árásirnar þar sem vísindalega aðferðin er sett upp og hver einasti hluti opinberu skíringanna um hrun turnana er hrakinn.

9/11 Blueprint for truth

Svo er einnig gaman að tékka á 

9/11 loose change

En ekki trúa mér skoðið málið sjálf.

 

 

 

 


mbl.is Hryðjuverkaárásirnar „haugalygi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jörðin er að kólna og plöntur anda að sér co2 - Þetta er augljóslega svindl

Man engin eftir málinu sem hefur verið kallað ClimateGate?

http://www.prisonplanet.com/climategate-this-time-al-gore-lied.html  

 Þetta mál varðar tölvuhakkara sem afrituðu tölvupóst frá The Climatic Reasearch Unit við Háskólann í Austur Angliu sem er sú stofnun sem gerir rannsóknir fyrir Sameinuðu Þjóðirnar.

Leiddu þessi e-mail það í ljós að tölum hafi verið hliðrað til, gögnum eytt og hvernig væri hægt að þagga niður í fólki sem var á móti þeirra skoðun t.d. með því að nota stór orð og fullyrðingar eins og:  Vísindamenn eru sammála um vísindin, tíminn fyrir rökræður er búinn.

Svo með því að nota uppnefni eins og "Climate denier" og tengja þannig í undirmeðvitund fólks einstaklinga sem eru ekki sammála hlýnun jarðar af mannavöldum við Holocaust denier.

Í rauninni eru vísindamenn ekki sammála um vísindin enda hafa 30.000 vísindamenn kært Al Gore fyrir lygar og svik.  Stofnandi The Weather Channel, John Coleman, sagði núna í fyrra að hlýnun jarðar af mannavöldum væri mesta svindl sögunnar.

Svo er það þessi fullyrðing:  "Tíminn fyrir rökræður er búinn" sem er algjört rugl.  Ef þú ert vísindamaður og ert ekki efasemdarmaður, þá ertu ekki vísindamaður. Þess vegna eru vísindin með kenningar eins og þróunarkenninguna en ekki þróunarfullyrðinguna.  Ástæðan fyrir þessu er sú að eitthvað nýtt getur alltaf komið í ljós og ein af leiðunum til þess að þróun mannsins, vitsmunalega og tæknilega stöðvist ekkert verðum við að hafa efann að leiðarljósi til að finna sannleikann.

Með þetta að leiðarljósi ætti hverjum manni að vera ljóst að Climate Change eru ekki lengur vísindi heldur trúarbrögð og í þokkabót hættuleg trúarbrögð.  

Vegna "The Church of Climate Change" er verið að taka ræktarland undir ræktun á lífefnaeldsneyti sem hefur það í för með sér að  fátækt fólk mun deyja svo að við getum haldið uppi sama standard og áður.

Hvert var markmiðið með öllum þessum lygum?

Markmiðið er að setja þak á co2 losun mannsins og ef þú ætlar að fara yfir losunarmörkin þá þarftu að kaupa co2 kvóta.  Ef þú ætlar að t.d. að kaupa co2 kvóta í Bandaríkjunum þarftu að kaupa kvóta aF fyrirtæki í eigu Al Gore sem heitir Blood and Gore (ekki grín).  Þetta co2 kvóta brask er þegar byrjað í Bandaríkjunum og er Al Gore orðin moldríkur á því að bjarga jörðinni.  Gæti verið að það sé einhver tenging þarna á milli?

Nokkrar staðreyndir að lokum. 

Jörðin hefur verið miklu hlýrri í fortíðinni og líka miklu kaldari og allt hefur þetta gerst löngu fyrir tíma mannanna og á tíma mannsins. Við öndum að okkur súrefni og öndum frá okkur co2.  Við prumpum co2 og plöntur anda að sér co2 og anda frá sér súrefni.

oxcycle

Það eina sem aukið co2 gerir,  er að plöntur stækka meira og þurfa minna vatn og dafna almennt betur.

Svo ég komi mér að fullyrðingunum í titlinum,  þá hafa tölur NASA sýnt að jörðin var að hlýna alveg til ársins 2002, en hefur kólnað eftir það.  Þetta átti einnig við um aðrar plánetur í sólkerfinu, þar á meðal Mars og Júpíter sem eru fjær sólinni en við.

http://www.dailytech.com/NASA+Study+Acknowledges+Solar+Cycle+Not+Man+Responsible+for+Past+Warming/article15310.htm

 

Þegar öllu er á botninn hvolft, er þetta samsæri um það að græða á hringrás lífsins,  gera þá ríku ríkari og réttlæta nýja skatta og skattpína okkur enn frekar með því að misnota raunverulegar áhyggjur fólks um umhverfið sitt og framtíð jarðarinnar.

Auðvitað eigum við að finna nýja orkugjafa, olían endist ekki að eilífu.  Mannkynið verður að halda áfram að þróast á ný tæknistig  og berjast fyrir raunverulegum umhverfismarkmiðum og hætta að hlusta á gráðuga stjórnmálamenn og valdaklíkur stórfyrirtækja.

Og eitt að lokum. 

Fréttamennskan í flestu stóru fjölmiðlunum er svo léleg, að þeir fjalla ekki um aðrar kenningar og hugmyndafræði um þessi mál, þótt að þær séu réttar, vegna þess að þær eru ekki vinsælar.  Þessar lygar þarf að uppræta og það er hægt með hlutlausum fjölmiðlum sem fjalla um allar hliðar málsins en ekki bara þær sem auka áhorfið og lesninguna.

Takk fyrir


mbl.is Framför í loftslagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband